Fréttir

Ályktun landsfundar um umhverfisvænar samgöngur

9.11.2005

Mikilvægt er að almenningur hafi val um vistvænar og heilbrigðar samgöngur. Greiðar og öruggar almenningssamgöngur, hjólreiðarbrautir, og notkun vistvænna orkugjafa í samgögnum munu draga úr hávaða- og loftmengun og bæta lýðheilsu.

 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hvetur til þess að skattar verði felldir niður af almenningssamgöngum. Einnig er mikilvægt að ríkið taki þátt í kostnaði við stofnkerfi almenningssamgangna og hjólreiðabrauta, ekkert síður en gatna og vegakerfis fyrir almenna bílaumferð.

 

Umbuna skal þeim sem nota umhverfisvæna orkugjafa. Lagt er til að skattar og tollar verði lækkaðir á umhverfisvænar bifreiðar og fagnað er áformum borgarinnar um gjaldfrjáls bílastæði fyrir þær. Með þessu móti má draga úr mengun í umferðinni.

 

Áhersla er lögð á að sett verði ákvæði um hjólreiðabrautir í vegalög þannig að hjólreiðar verði raunhæfur valkostur í samgöngum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica