Fréttir

Fjölmenni, söngur og gleði hjá VG í Kópavogi

7.4.2009

2009-04-05-vg_kosningamidstod kop
2009-04-05-vg_kosningamidstod kop

Vinstri græn opnuðu kosningaskrifstofu að Hamraborg 1-3 á sunnudaginn. Fjöldi fólks lagði leið sína á opnunina og hlýddi á ávarp Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur oddvita lista VG í Kragakjördæminu. Þá söng Guðrún Gunnarsdóttir söngkona nokkur lög fyrir gesti. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sem skipar annað sæti lista VG í kjördæminu og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG heilsuðu einnig upp á gesti. Kosningaskrifstofan verður opin alla virka daga frá 14 til 19 fram að kosningum og frá 12 til 18 um helgar. Vinstri græn hafa notið mikils stuðnings í skoðanakönnunum að undanförnu, í könnun Capacent sem birt var í útvarpsfréttum síðasta fimmtudag mældist fylgi VG 27,7 prósent á landsvísu.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica