Fréttir
Fjölmenni við opnun kosningaskrifstofu á Egilsstöðum
Kosningaskrifstofa Vinstri grænna í Kaupvangi 5 á Egilsstöðum var opnuð formlega síðastliðinn laugardag, 4. apríl og voru allir efstu frambjóðendur á lista flokksins í Norðausturkjördæmi viðstaddir opnunina.
Formleg dagskrá hófst uppúr kl. 16 með því að Björn Valur Gíslason og Bjarkey Gunnarsdóttir kynntu kosningaáherslur VG í komandi alþingiskosningum. Í kjölfarið fylgdi tónlistaratriði frá Þorbirni Rúnarssyni og Magnúsi Magnússyni en síðan ávörpuðu þingmenn flokksins í kjördæminu, Steingrímur J. Sigfússon og Þuríður Backman, viðstadda. Að lokinni dagskrá gæddu gestir sér á veitingum og ræddu við frambjóðendur.
Rúmlega 60 manns voru viðstaddir opnunina. Stemmingin var afar góð og voru síðustu gestir að tínast úr húsi hátt í þremur klukkustundum eftir að dagskrá hófst.

