Fréttir

Ályktunartillaga um málefni tónlistarskólanna

9.11.2005

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs haldinn á Grand hótel í Reykjavík 21.-23. október 2005 felur stjórn flokksins að skipa nefnd til að gera tillögu um stefnu flokksins í málefnum tónlistarskóla.

 

Nefndin skili stefnudrögum eigi síðar en 1. febrúar þannig að hægt sé að gera grein fyrir stefnu flokksins á þessu sviði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga á næsta ári.

 

Í störfum sínum skal nefndin leita sem víðast fanga. Í þessu sambandi er m.a. bent á greinargerð sem Samtök tónlistarskóla (STS) sendu menntamálaráðuneytinu í bréfi 29. mars 2004 vegna vinnu nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla (nr. 75/1985) með áorðnum breytingum).

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica