Fréttir

Forvalsreglur Vinstrihreyfingar - græns framboðs á Akureyri

22.11.2005

1. Félagsfundur Akureyrardeildar VG þann 14 nóvember 2005 kaus fimm manna kjörstjórn til að annast framkvæmd forvalsins. Formaður hennar er Hallur Gunnarsson en aðrir eru, Ólafur Þ. Jónsson, Guðný Anna Ríkarðsdóttir, Hlynur Hallsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir

 

2. Forvalið skal auglýsa og tilkynni þeir sem óska eftir að vera í kjöri, kjörstjórn það skriflega fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 1. desember 2005.

 

3. Kosningarétt hafi allir skráðir félagsmenn 16 ára og eldri með lögheimili í Akureyrarkaupstað sem greitt hafa árgjald fyrir veturinn 2005-6. Hægt er að skrá sig í félagið fram til lokunar kjörstaðar.

 

4. Kjörstjórn skal annast kynningu á frambjóðendum.

 

5. Kjörfundur verður haldinn laugardaginn 21. janúar 2006 kl.10.00-18.00 að Hafnarstræti 98 Akureyri.

 

6. Kjörseðill: Kjósandi fær lista með nöfnum frambjóðenda og raðar hann frambjóðendum í sæti nr. 1-6. Kjörseðill er því aðeins gildur að merkt sé við sex nöfn með tölunum 1, 2, 3, 4, 5 og 6..

 

7. Kjörstjórn annast talningu atkvæða strax að loknum kjörfundi og birtir niðurstöðu kosningarinnar á formlegum fundi sem haldinn verður að kvöldi kjördags.

 

8. Til að tryggja jafna stöðu kynjanna á listanum skal eftirfarandi reglum beitt:

Fjöldi atkvæða í einstök sæti ræður úrslitum þannig að frambjóðandi sem fær flest atkvæði í 1. sæti telst hafa hlotið kosningu í það sæti.

Frambjóðandi af gagnstæðu kyni sem fær flest atkvæði í 1.-2. sætið telst hafa hlotið kosningu í 2. sæti.

Frambjóðandi sem fær flest atkvæði í 1.-3. sæti telst hafa hlotið kosningu í 3. sæti.

Frambjóðandi af gagnstæðu kyni sem fær flest atkvæði í 1.-4. sætið telst hafa hlotið kosningu í 4. sæti Frambjóðandi sem fær flest athvæði í 1-5. sæti telst hafa hlotið kosningu í 5. sæti.

Frambjóðandi af gagnstæðu kyni sem fær flest athvæði í 1-6. sæti telst hafa hlotið kosningu í 6. sæti

 

9. Kjörstjórn gengur endanlega frá tillögu til félagsfundar um uppstillingu framboðslistans í heild, þó þannig að til skiptis sé gerð tillaga um karl og konu.

 

10. Frambjóðendum er óheimilt að kaupa sér auglýsingar í fjölmiðlum

 

11. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla auglýst síðar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica