Fréttir

Forval VG í Kópavogi

22.11.2005

Forval Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi vegna bæjarstjórnarkosninganna 2006 fer fram laugardaginn 26. nóvember. Á aðalfundi VGK í október voru samþykktar forvalsreglur þar sem m.a. er gert ráð fyrir fléttulistafyrirkomulagi til að jafna stöðu kynjanna á listanum. Kosið verður um fjögur efstu sætin. Kosningarétt í forvalinu hafa allir fullgildir flokksmenn í VGK miðað við 25. nóvember 2005.

 

 

Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir og Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur og framhaldsskólakennari bjóða sig fram í 1. sæti.

Emil Hjörvar Petersen háskólanemi og formaður VG í Kópavogi, Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og Lára Jóna Þorsteinsdóttir sérkennari bjóða sig öll fram í 2.-4 sæti. Loks býður Sindri Kristinsson nemi og stuðningsfulltrúi sig fram í 4. sæti.

 

 

Bæklingur verður sendur til allra félaga í Kópavogi þar sem frambjóðendur gera grein fyrir sjálfum sér, áherslum sínum og hugðarefnum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica