Fundur um málefni eldri borgara
Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hafa ákveðið að efna til fundar með fulltrúum stjórnmálaflokka sem setu eiga á Alþingi um kjör eldri borgara. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 26. nóvember kl. 14:00-16:00 að Stangarhyl 4, í félagsheimili Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Fulltrúi þingflokks VG verður Ögmundur Jónasson.
Í stað laugardagsfundar VG í Reykjavík að þessu sinni hvetur stjórn félagsins félagsmenn að fjölmenna á þennan fund um þessi mikilvægu mál.
Stjórnin

