Fréttir

Um forval á Akureyri - frestur framlengdur

25.11.2005

Frestur til að tilkynna um framboð í forvali VG á Akureyri til 15. desember 2005

 

Frestur til að tilkynna um framboð í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri hefur verið framlengdur til 15. desember 2005 og á að senda tilkynningar um framboð á netfangið vgforval@gmail.com

 

Forvalið mun fara fram laugardaginn 21. janúar 2006 milli klukkan 10 ? 18, í húsnæði VG á Akureyri, Hafnarstræti 98. Þá verða valdir 6 efstu frambjóðendur á lista flokksins fyrir næstu sveitastjórnarkosningar.

 

Kosningarétt hafi allir skráðir félagsmenn 16 ára og eldri með lögheimili í Akureyrarkaupstað. Hægt er að skrá sig í félagið fram til lokunar kjörstaðar.

 

Til að tryggja jafna stöðu kynjanna á listanum munu fulltrúar af gagnstæðu kyni skipta tvö efstu sætin sem og hver tvö sæti þar á eftir.

 

Fimm manna kjörstjórn mun annast framkvæmd forvalsins. Formaður hennar er Hallur Gunnarsson en aðrir nefndarmenn eru, Ólafur Þ. Jónsson, Guðný Anna Ríkarðsdóttir, Hlynur Hallsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir.

 

Forvalsreglur er að finna á www.vg.is

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica