Fullt út úr dyrum hjá VG í Garðabæ.
Fullt var út úr dyrum hjá VG í Garðabæ í gærkvöldi þegar Félag VG í bænum var endurreist og stofnað. Mikil stemmning var á staðnum og hugur í fundarmönnum að mála Garðabæ í fleiri litum en þeim bláa. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur stýrði fundinum og rifjaði upp sögur úr Garðabæ. Hún sagði að sér hefði stundum fundist hún vera eins og "The only gay in Little Britain" að vera vinstrigræn í Garðabæ, en nú væru bersýnilega að renna upp nýir tímar. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp og talaði um nauðsyn þess fyrir íslenskt samfélag að aðrar og breyttar áherslur og nýtt gildismat réði hér ríkjum næstu misserin og því væri úrslitaatriði að góður kosningasigur ynnist í apríl. Það tæki ár en ekki bara vikur að endurreisa Íslands og til þess þyrfti félagshyggjufólk að vinna saman.
Ný stjórn Félags VG í Garðabæ var kosin einróma, en hana skipa:
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Guðríður Þorleifsdóttir
Helgi Hafsteinn Helgason
Árdís Ýr Pétursdóttir
Gísli Garðarsson
Formaður var kjörin Þórdís Eygló Sigurðardóttir. Í varastjórn sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir og Bergur Rögnvaldsson.
Stjórnin var kjörin með dynjandi lófataki allra viðstaddra.
Elín Ey tónlistarkona tróð upp við góðar undirtektir og Skerjafjarðarskáldið slengdi fram nokkrum vísum af tilefni fundarins:
VINSTRI GRÆN Í GARÐABÆ
Alstaðar má byggja brú,
það boðar Rauða kverið,
og Vinstri grænir geta nú
í Garðabænum verið.
Hér var útlit hélugrátt,
en hagur fer að vænka
því þar sem áður böl var blátt
nú byrjað er að grænka.
Nú bregður lífsins lukkuhjól
á leik með Vinstri grænum,
við höfum eignast húsaskjól
hér í Garðabænum.
Veitingar voru framreiddar af frambjóðendum VG í Suðvesturkjördæmi en forval VG í Suðvesturkjördæmi fer fram núna á laugardaginn frá kl. 10-22 (í Hamraborg 1-3 Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ). Fimmtán hafa boðið sig fram um 6 efstu sætin og kosningavaka fer fram í Hofinu í Fjörukránni, Hafnarfirði kl. 22-01 á laugardagskvöld þar sem allir eru velkomnir.

