Fréttir

Öflugt málefnastarf í Vestmannaeyjum

8.2.2007

Vinstri græn í Vestmannaeyjum hafa nú hafið öflugt málefnastarf vegna kosninganna í vor. Miðvikudaginn 7. feb. sl. var haldinn annar fundurinn í fundaröð um stefnumál. Atli Gíslason sem skipar 1. sæti listans í Suðurkjördæmi og Rannveig Sigurðardóttir kosningastýra voru gestir fundarins. Farið var yfir þau málefni sem snerta Suðurkjördæmi og þá sérstaklega Vestmannaeyjar. Þá var einnig rætt um Landsfund Vinstri grænna sem haldinn verður í lok febrúar. Mikill hugur er í Vinstri grænum í Vestmannaeyjum og ætla þeir sannarlega að legga sitt af mörkum til þess að Vinstri græn eignist fulltrúa á Alþingi eftir kosningarnar í vor.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica