Val á framboðslistum VG fyrir kosningarnar
Nú liggur fyrir í flestum kjördæmum hvernig valið verður á lista Vinstri grænna fyrir komandi alþingiskosningar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vg.is jafn óðum og þær berast en fljótlega verður komið upp síðum fyrir hvert kjördæmi fyrir sig þar sem kynntar verða forvalsreglur og frambjóðendur.
Reykjavík:
Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 19. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í pósthólf 175 - 121 Reykjavík.
Kosningarétt hafa allir þeir sem skráðir eru félagar í VGR 6. mars næstkomandi en kjörfundur er haldinn 7. mars. Nánari upplýsingar um utankjörfund og póstkosningu verða birt á vef Vinstri grænna vg.is. Allir félagar fá sendan bækling með upplýsingum um frambjóðendur.
Suðvesturkjördæmi:
Framboðsfrestur rennur út 23. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar á kjorstjornvgsv@gmail.com.
Kosningarétt hafa allir þeir sem skráðir eru félagar í en kjörfundur verður haldinn 5. og 6. mars. Nánari upplýsingar um utankjörfund og póstkosningu verða birt á vef Vinstri grænna vg.is
Norðvesturkjördæmi:
Kjördæmisráðsþing í Norðvesturkjördæmi er haldið næstkomandi sunnudag 22. febrúar og verður þá tekin afstaða til þess hvort farið verði í forval eða uppstillingu
Norðausturkjördæmi:
Framboðsfrestur rann út í gær 16. febrúar
Kosningarétt hafi allir félagsmenn í VGNA miðað við 23. febrúar 2009 en kjörfundur verður haldinn 28. febrúar 2009. Allir skráðir félagar fá send kjörgögn ásamt upplýsingum um frambjóðendur.
Suðurkjördæmi:
Framboðsfrestur rennur út kl 17:00 föstudaginn 19. febrúar. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til formanns kjörstjórnar Kjartans Ágústssonar, Löngumýri, Skeiðum, 801 Selfoss eða í tölvupósti langamyri@uppsveitir.is.
Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VG í Suðurkjördæmi miðað við 19. febrúar 2009 en kosið verður póstkosningu og skulu atkvæðaseðlar hafa verið póstlagðir eigi seinna en miðvikudag 25. febrúar. Allir félagar fá send kjörgögn ásamt upplýsingum um frambjóðendur.

