Ályktun þingfloks um Þjórsárver
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs telur að sú staða sem nú hafi skapast, með niðurstöðu umhverfisráðherra dags. 28.12.05 varðandi svæðisskipulag miðhálendisins, gefi færi á að stækka friðland Þjórsárvera og tryggja þannig til framtíðar vernd þessarar einstöku náttúruperlu, sem hefur hlotið sess á lista Ramsar-samningsins yfir alþjóðlega mikilvæg votlendissvæði. Verði friðlandsmörkin færð út sem nemur landfræðilegu umfangi hinna eiginlegu Þjórsárvera má telja fullvíst að svæðið í heild sinni eigi möguleika á að vera tekið inn á hina eftirsóknarverðu heimsminjaskrá UNESCO. Þannig yrði Þjórsárverum sýndur sá sómi sem þau eiga skilið og þar með væri farið að tillögu Umhverfisstofnunar, en hugmyndir hennar byggja á sömu forsendum og þingsályktunartillaga Vinstriheyfingarinnar græns framboðs, sem hefur verið lögð fram á Alþingi ár hvert síðan 2001.
Þingflokkurinn skorar því á samvinnunefnd miðhálendisins að fara að vilja sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps og hafna alfarið öllum hugmyndum um Norðlingaölduveitu, en auglýsa þess í stað nýja tillögu að skipulagi á svæðinu sunnan Hofsjökuls þar sem friðlandsmörk Þjórsárvera verði færð út og vernd þessa dýrmæta svæðis tryggð til framtíðar.

