Fréttir

Samstaða með St. Jósefsspítala

10.1.2009

Stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði lýsir yfir samstöðu með St. Jósefsspítala og lýsir yfir furðu sinni á því hvernig ríkisstjórnin, með heilbrigðisráðherra í fararbroddi hyggst þvínga starfsfólk til þátttöku einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Það er ömurlegt að sjá að þetta sé afurð núverandi ríkisstjórnarsamstarfs. Það sést greinilega hvernig stjórnarsáttmáli núverandi ríkisstjórnar nær hér enn einu marmiði sínu sem snýst um frekari einkavæðingu, en í stjórnarsáttmála segir einmitt að hvetja eigi til fjölbreyttari rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu.

Samtímis lýsir stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði yfir stuðningi við megininntak stjórnar Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði, en ólíkt félögum sínum í ríkisstjórn, er andstaða við einkavæðingu heilbrigðiskerfisins ríkari í Hafnarfirði en á stjórnarheilmilinu. Vinstri græn munu í engu láta sitt eftir liggja að styðja við spítalann, sem hefur verið hluti af farsælu Hafnfirsku samfélagi. Fyrirætlanir ráðherra eru í hróplegri andstöðu við það nýja Ísland sem eðlilegt er að stefna að í kjölfar hruns einkavæðingar og frjálshyggju.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica