Fréttir
Ályktun UVG-R um gjaldskrárbreytingu Strætó bs
Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík mótmælir harðlega þeirri gjaldskrárbreytingu sem verð hjá Strætó bs. nú um áramót. Sú breyting felur í sér hækkun á almennu fargjaldi um 13,6% og er það þvert á stefnu UVG-R í umhverfis- og samgöngumálum. Ung vinstri græn í Reykjavík vilja efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og telja fýsilegan kost að Strætó bs. veiti ungmennum yngri en 18 ára, öllum námsmönnum, eldri borgurum og öryrkjum gjaldfrjálsa þjónustu.

