Stjórnarflokkarnir bera báðir ábyrgð á að Íslendingar eigi kost á góðri heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag!
Félagsfundur Vinstri grænna í Borgarbyggð, haldinn 7. janúar 2009, lýsir yfir áhyggjum vegna órökstuddra skipulagsbreytinga í heilbrigðisgeiranum. Fundurinn telur vafasamt að nokkurs staðar fáist umtalsverð hagræðing af breytingunum, en víða verði hún til óhagræðis. Það hefur lengi verið ljóst að flokkur heilbrigðisráðherra vill rústa núverandi kerfi heilbrigðisþjónustu fyrir alla, en hinn stjórnarflokkurinn hefur í orði kveðnu verið annarrar skoðunar. Báðir stjórnarflokkarnir hljóta þó að teljast jafn ábyrgir fyrir afleiðingum þessara breytinga.
Vinstri græn í Borgarbyggð mótmæla sérstaklega nýrri og aukinni skattlagningu á sjúklinga í stað þess að sækja fé með hærri sköttum á hátekjufólk.

