Ný svæðisfélög VG í Skagafirði og Húnavatnssýslum
Í gærkvöld var stofnað nýtt svæðisfélag Vinstri grænna í Skagafirði og í kvöld verður slíkt félag stofnað fyrir Húnavatnssýslur. Þessi félög munu taka við hlutverki Svæðisfélagsins fyrir Norðurland vestra og félagsdeildarinnar í Sveitarfélaginu Skagafirði. Þessar breytingar eru gerðar til að einfalda starfið og bregðast við mikilli fjölgun félaga í VG, bæði í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Fjölgun félaga í flokknum á þessu svæði er ánægjuleg og sýnir að stefna VG hefur góðan hljómgrunn á meðal íbúa á Norðurlandi vestra.
Í stjórn Svæðisfélags VG í Skagafirði voru kosin Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir Sauðárkróki, Björg Baldursdóttir Hólum, Úlfar Sveinsson Ingveldarstöðum, Ólafur Þ. Hallgrímsson Mælifelli og Steinunn Rósa Guðmundsdóttir Sauðárkróki.

