VG á Akureyri ályktar um kjaramál leikskólakennara
Almennur fundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri, haldinn mánudagskvöldið 9. janúar 2006, samþykkti svohljóðandi ályktun:
Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akureyri fagnar kjarabótum ófaglærðra starfsmanna leikskóla í Reykjavík enda löngu tímabært að bæta kjör þeirra.
Hinsvegar er komin upp undarleg staða þegar leikskólakennarar koma til með hafa að lægri laun en leiðbeinendur.
Fundurinn skorar á stjórnendur Akureyrarbæjar að semja um mannsæmandi laun við leikskólakennara og leiðbeinendur á vettvangi launanefndar sveitarfélaganna. Ef ekki tekst að semja um hækkun launa á þeim grundvelli ber Akureyrarbæ að segja sig úr samstarfi við launanefndina.
Vel mætti hinsvegar spara laun hjá æðstu stjórnendum Akureyarabæjar.

