Samþykkt að jafna tækifæri barna til frístundaiðkunar
Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs var samþykkt tillaga fulltrúa Vinstri grænna um að breyta reglum um frístundakortið í þá veru að foreldrar gætu nýtt það til að greiða fyrir frístundaheimili ef þau svo kjósa.
Í frístundaheimilum ÍTR eru börn á aldrinum 6-9 ára kynnt fyrir fjölbreyttu og uppbyggjandi frístundastarfi, auk þess sem þar er markvisst unnið að því að þroska félags- og samskiptafærni barna. Starfið er faglegt og metnaðarfull og uppfyllir öll þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir notkun kortsins frá upphafi. Á fyrstu árum í grunnskóla taka börn út mikinn þroska, sem m.a. felst í að þróa með sér áhugamál til framtíðar og skipta frístundaheimilin þá sköpum.
Megintilgangur frístundakortanna er að auðvelda börnum og unglingum í Reykjavík að sinna uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag foreldra. Vinstri græn hafa alla tíð lagt áherslu á að til að frístundakortin virki sem raunverulegt jöfnunartæki, verði frístundaheimilin að vera þar valkostur. Nú, þegar efnahagsástandið krefst endurskoðunar á útgjöldum margra fjölskyldna, er brýnna en nokkru sinni að foreldrar hafi fullt frelsi til að ráðstafa frístundakortinu í þær tómstundir sem þeir telja að nýtist börnum sínum best.
Það er því fagnaðarefni að tillagan hafi loksins verið samþykkt.


