Hópastarf Vinstri grænna
Innan VG eru nú starfandi hópar um landbúnaðarmál undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Jóns Bjarnasonar, velferðarhópur undir stjórn Katrínar, sjávarútvegshópur undir stjórn Atla Gíslasonar og hópur um aðgerðaráætlun til vors undir stjórn Héðins Björnssonar auk þess sem kvenfrelsishópur sem Sóley Tómasdóttir stýrir er að fara af stað og menntamálahópur undir stjórn Auðar Lilju Erlingsdóttur.
Á stjórnarfundi á föstudag var auk þess ákveðið að koma af stað hópum um atvinnumál, nýsköpunarmál, húsnæðismál og umhverfismál en meginviðfangsefni hópanna verður eðlilega að skoða málaflokkinn út frá efnahagsástandinu og þeim áherslum sem nú er rætt um í stjórnmálum. Nú er auglýst eftir hópstjórum og áhugasömu fólki til að taka þátt í þessu hópastarfi. Skrifstofan mun halda utan um skráningar í hópana og netfangalista þeim tengdum og má skrá sig á veffanginu vg@vg.is og í síma 552 8872. Allir ættu að geta tekið þátt hvar á landinu sem er með aðstoð tækninnar.

