Fréttir

Eldri vinstri græn koma saman á morgun

9.12.2008

EVG: Þriðji fundur vetrarins verðurmiðvikudaginn 10. desember nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík.

Dagskráin verður þessi:

  1. Annes og eyjar fyrir Austfjörðum   Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur bregður upp myndum frá óvæntu sjónarhorni og kryddar með frásögnum úr fortíð og nútíð.
  2. Róttæk samfélagsrýniÁrmann Jakobsson rithöfundur kynnir stuttlega bókina „Múrbrot“ sem hefur að geyma greinar úr vefritinu Múrinn.
  3. Hvað gerist að tjaldabaki í brúðuleikhúsi? Hallveig Thorlacius brúðuleikari spjallar um heim þeirra sem halda í spottana á þessum leiksýningum.
  4. Nálgast jóla lífsglöð læti“ Lena Margrét Rist og forsöngvarar úr sal leiða fjöldasöng með lögum sem hæfa jólaföstu.     

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið. – Það er tilvalið að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. – Fyrsti fundur á nýju ári verður miðvikudagskvöldið 4. febrúar 2009.   



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica