Góðum fundi lokið
Fundi flokksráðs Vinstri grænna er nýlokið og sóttu hann yfir 120 félagar. Mikil stemmning var á fundinum, tekist var á um áherslur en skjal stjórnar VG um endurmótun samfélagsins var samþykkt efnislega einróma og vísað til áframhaldandi úrvinnslu í grasrót flokksins - sjá hér
Ályktun um sveitastjórnarmál var samþykkt samhljóða en hún er svo:
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs haldinn 7. desember 2008 á Grand hótel telur það vera sameiginlegt verkefni hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, að standa vörð um hag almennings. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í endurmótun samfélagsins og mikilvægi þeirra við uppbyggingu og endurmat er ótvírætt í samstarfi við íbúa, félagasamtök og hagsmunaaðila. Þau standa íbúunum næst og sinna verkefnum á sviði velferðar og menntunar. Sérstaklega þarf að styrkja og efla sveitarfélögin við þau skilyrði sem nú eru uppi.
Mikilvægt er að löggjafinn tryggi Lánasjóði sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fé til að lána sveitarfélögum til rekstrar við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja. Þó verði jafnframt tryggt að rekstur sveitarfélaga verði lagaður að þeim aðstæðum sem skapast hafa þannig að Lánasjóðurinn komist ekki í þrot.
Það er skýlaus krafa sveitarstjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að við mótun efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar verði hagsmunir sveitarfélaganna hafðir í forgangi.

