Að loknum aðalfundi VG í Árborg
Vinstri græn í Árborg héldu aðalfund sinn í gærkveldi, 26. nóvember. Sædís Ósk var endurkjörin formaður félagsins en auk hennar sitja í stjórn Margrét Magnúsdóttir, Valgeir Bjarnason, Jón Hjartarson og Sigurður Ingi Andrésson. Á fundinum voru samþykktar þrjár álytkanir; um kosningar, um myntbandalag Evrópu og um atvinnumál. Ályktanirnar eru svohljóðandi:
Kosningar sem fyrst!
Aðalfundur VG í Árborg leggur þunga áherslu á þá lýðræðislegu nauðsyn að efnt sé til kosninga sem allra fyrst og eigi síðar en í apríl 2009. Nauðsynlegt er að endurnýja umboð Alþingis til að mynda nýja ríkisstjórn svo unnt sé að takast á við úrvinnslu bankahrunsins og lausn efnahagsvandans með trúverðugum hætti. Óróinn í landinu fer vaxandi og mun ná hættulegu stigi verði ekki strax brugðist við og kosningar boðaðar. Það blasir við að núverandi ríkisstjórn starfar ekki í umboði þjóðarinnar – það sýna allar skoðanakannanir og viðbrögð almennings. Því er það óskiljanlegt að stjórnmálaflokkar, sem vilja kenna sig við lýðræði og frelsi ætli að níðast á skoðunum fólksins í landinu með þeim hætti að neita almenningi um þá sjálfsögðu og réttmætu kröfu að kjósa á ný og endurnýja umboð Alþingis til að fara með stjórn landsins. Alþingiskosningar hljóta enn fremur að snúast um það hvort þjóðin samþykki samninga við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Icesave sem munu leggja þungan klafa á börn okkar og barnabörn. Góður maður á öldinni sem leið hefði orðað þetta svona: „Löglegt en siðlaust.“ Það er dapurlegt að í flaggskipi lýðræðisins, Alþingi Íslendinga, skuli nú vera ástunduð vinnubrögð alræðisins eins og hjá þjóðum, sem við höfum forðast að bera okkur saman við.
Evra ekki raunhæf strax
Aðalfundur VG í Árborg átelur mjög, að í „umræðunni“ um aðild Íslands að ESB sé sannleikurinn sniðgenginn með margvíslegu móti. Aðalfundurinn bendir m.a. á að aðild Íslands að ESB felur ekki í sér sjáfkrafa aðild að myntbandalaginu og upptöku Evru. Þvert á móti verður efnahagsástandið að rétta úr kútnum og öðlast stöðugleika svo upptaka evru yrði samþykkt. Jafnvel þótt Ísland gengi í ESB strax á næsta ári munu líða a.m.k 5 -7 ár þangað til upptaka evrunnar yrði möguleg, þangað til yrði krónan okkar gjaldmiðill. Aðalfundurinn hvetur ábyrga stjórnmálamenn til að halda uppi réttum málflutningi og túlka allar hugsanlegar breytur vegna aðildarinnar en ekki bara þær sem eru hagstæðar skoðunum viðkomandi.
Byggjum atvinnulíf á innlendri þekkingu og fjármagni
Aðalfundur VG í Árborg hafnar algjörlega öllum fyrirliggjandi stóriðjuáformum sem fela í sér frekari ágang á auðlindir þjóðarinnar, umhverfisspnöll og aukna skuldsetningu. Aðalfundurinn minnir á að hvert starf í stóriðju krefst fjárfestingar upp á 150 -200 milljóna sem taka verður að láni erlendis með samsvarandi skuldsetningu. Aðalfundurinn telur að skuldsetning komandi kynslóða sé komin úr öllu hófi og núverandi kynslóð sem ber ábyrgð á henni komin langt yfir öll velsæmismörk. Því leggur Vg í Árborg áherslu á eflingu þeirra atvinnugreina sem fyrir eru í landinu, sjávarútveg, landbúnað, ferðaþjónustu, líftækni og þekkingarstarfsemi, sem unnt er að byggja á innlendri þekkingu og fjármagni.

