Ályktanir aðalfundar Kjördæmisráðs VG í Suður
1. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi telur afar brýnt að stöðva þá óheillaþróun til aukins misréttis og tekjumunar sem stefna núverandi ríkisstjórnar hefur leitt til. Æðstu ráðamenn ríkis og fyrirtækja misnota aðstöðu sína til að skammta sér tekjur og eftirlaun sem eru algjörlega úr takti við það sem almenningur býr við. Auka þarf möguleika láglaunafólks til að ná fram mannsæmandi launum og hemja þarf græðgi þeirra sem við kjötkatlana sitja. Takmark Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er réttlátt þjóðfélag með jöfn réttindi og jöfn tækifæri fyrir alla.
2. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi lýsir ábyrgð á hendur ríkisstjórninni fyrir að fórna mikilvægum útflutningsgreinum á altari stóriðjustefnunnar og því háa gengi krónunar sem hún veldur. Með því er vegið háskalega að hagsmunum ferðaþjónustu, þekkingariðnaðar og fiskiðnaðar, en þessar greinar eru okkur Íslendingum mun mikilvægari en stóriðjan.
3. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi telur óráðlegt að reist verði álver við Helguvík, heldur beri að leggja áherslu á þekkingariðnað og flugtengda starfsemi á þessu svæði við dyr alþjóðaflugvallarins. Þannig sköpum við fleiri og eftirsóknarverðari störf fyrir uppvaxandi kynslóðir og komumst hjá mengun og náttúrueyðileggingu.
4. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi fagnar því að Bandaríkjaher dregur saman seglin og telur að íslensk stjórnvöld eigi að hefja nú þegar samningaviðræður um endanlega brottför hersins í stað þess að liggja á hnjánum og biðja um áframhaldandi hersetu. Fundurinn átelur ríkisstjórnina fyrir að draga lappirnar í þessu máli og ríghalda í úreltar kaldastríðshugmyndir sem þjóna ekki öryggishagsmunum Íslendinga. Stefna ber að því að Íslendingar öðlist aftur yfirráð yfir því landsvæði sem afhent var Bandaríkjaher fyrir hálfri öld og tryggja fullan afnotarétt Íslendinga af flugvellinum svo flugtengd starfsemi geti eflst og blómstrað þar um ókomin ár. Þannig verður hægt að tryggja svigrúm fyrir annars konar starfsemi sem kemur í staðinn og þjónar hagsmunum íbúa á Suðurnesjum og allra Íslendinga.
5. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi skorar á ríkisstjórnina og Landsvirkjun að jarða endanlega allar hugmyndir um virkjunarfamkvæmdir í Þjórsárverum og efri hluta Þjórsár. Jafnframt er skorað á Alþingi að samþykkja framkomna tillögu um að mörk friðlandsins verði löguð að landfræðilegum og náttúrulegum mörkum Þjórsárvera.
6. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi leggur áherslu á að Langisjór og nærliggjandi svæði verði strax í upphafi innan Vatnajökulsþjóðgarðs þegar hann verður formlega stofnaður.
7. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi fordæmir sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarflokkanna sem virðist vera að leggja fiskimið okkar í rúst. Orkunotkun eykst og afli dregst saman. Hætt er við að nú þegar hafi óbætanlegur skaði verið unninn á fiskistofnum og sjávarbotni víða við landið. Það á ekki að líðast að fiski og nýtanlegum fiskúrgangi sé hent í sjóinn í þeim mæli sem nú tíðkast víða. Veiðarfæri sem skaða ungfisk í stórum stíl og eyðileggja hafsbotnin ber að banna eða takmarka sem frekast er unnt.
Núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi hefur á undanförnum árum einnig valdið ómældu
tjóni fyrir atvinnulíf í sjávarbyggðum vítt um landið. Fjársterkir einstaklingar og fyrirtæki geta hvenær sem er kippt lífsbjörginni undan heilu byggðarlögunum eins og æ fleiri dæmi sýna. Atvinnuöryggi er ekkert og fólk neyðist til að yfirgefa heimabyggðir sínar.
Nú þegar þarf að gjörbreyta fiskveiðistjórnkerfinu þannig að allar veiðar verði vistvænar og nýting sjávarauðlinda okkar verði í raun sjálfbær og sjávarbyggðunum og komandi kynslóðum í hag. Vinstri hreyfingin - grænt framboð hefur lagt fram raunhæfar tillögur í þessum efnum þar sem sýnt er fram á hvernig þessari öfugþróun verði best snúið við.
8. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi fagnar eflingu ferðaþjónustu um allt kjördæmið og hvetur til aukinnar menntunar og fræðslu ferðaþjónustufólks um náttúru landsins og sögu. Þannig ber að fagna því framtaki Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum að efna til náms fyrir leiðsögumenn sem sérhæfa sig í að túlka náttúru og sögu Suðurnesja fyrir jafnt innlendum sem erlendum ferðamönnum, en nýlega útskrifuðust 15 slíkir leiðsögumenn sem hafa þegar hafið störf.
9. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi leggur til að bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað, bæði með lengingu fæðingarorlofs og eins með eflingu leikskóla þannig að foreldrar eigi val um að láta börn sín byrja á ungbarnadeildum leikskóla strax þegar fæðingarorlofi lýkur. Einngi verði leikskólinn gerður gjaldfrjáls í áföngum og þannig viðurkenndur sem fyrsta skólastig sem allir eigi rétt á.
10. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi mótmælir fyrirætlunum menntamálaráðherra að stytta nám til stúdentsprófs. Fundurinn telur eðlilegra að beina heldur sjónum að endurskoðun náms frá upphafi skólagöngu allt til loka framhaldsskóla þannig að samfella verði í námi.
11. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi telur brýnt að bæta aðbúnað og kjör aldraðra þannig að þeir geti eytt ævikvöldinu í heimabyggð og fái þar góða aðhlynningu. Þeir sem eru við góða heilsu eiga að geta unnið t.d. í 3 mánuði á ári (allt að fjórðungi árstekna) án þess að ellilífeyri skerðist við það.
Fundurinn átelur þau vinnubrögð harðlega að í nýrri viðbyggingu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi skuli vera mun færri rúm en vitað er að er þörf fyrir nú þegar.
12. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi skorar á Heilbrigðisstofun Suðurlands að tryggja búsetu lækna í öllum heilsugæsluumdæmum á Suðurlandi. Það er t.d. ekki ásættanlegt að farandlæknar frá heilbrigðisstofnun Suðurlands sinni fólki á Kirkjubæjarklaustri.
13. Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi ályktar að bæta þurfi kjör og réttindi öryrkja og auðvelda þeim sem það geta að koma aftur til starfa. Nú skerðast bætur þeirra strax og þeir byrja að afla tekna, en gefa ætti þeim tíma til aðlögunar án þess að almannatryggingabæturnar skerðist.

