Fréttir

Dagskrá næstu tvo daga

25.11.2008

Í kvöld eru opnir fundir í Reykjavík og á Ísafirði auk þess sem Ung vinstri græn á Suðurlandi halda sinn aðalfund. Á morgun eru svo aðalfundir í svæðisfélögum Árborgar og Mosfellsbæ. Dagskráin er sem hér segir:

25.11.2008: Opinn fundur á Ísafirði í kvöld

Vinstri græn boða til opins fundar á Ísafirði í kvöld með Jóni Bjarnasyni, Ögmundi Jónassyni, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Drífu Snædal í Edinborgarhúsinu klukkan 20:30. Fjölmennum!

 

25.11.2008: Umræðufundur VG í Reykjavík

VGR boðar til umræðufundar þriðjudaginn 25. nóv. kl. 20.00 að Vesturgötu 7.

Fundarefni: Staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar og framtíðarhorfur.

Framsögur flytja Steingrímur J Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir

 

25.11.2008: Aðalfundur UVG á Suðurlandi

Ung vinstri græn á Suðurlandi halda aðalfund sinn þriðjudaginn 25. nóvember nk. Fundurinn fer fram á Kaffi Krús á Selfossi og hefst klukkan 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

 

26.11.2008 : Aðalfundur VG í Árborg

Vinstri græn í Árborg boða til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 26. nóvember næstkomandi í Tryggvaskála á Selfossi klukkan 20. Hefðbundin aðalfundastörf. Allir félagar hvattir til að mæta.

 

26.11.2008 : Aðalfundur Vinstri grænna í Mosfellsbæ

Þann 26. nóvember kl 20 halda Vinstri græn í Mosfellsbæ aðalfund. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Fundurinn er í Hlégarði (uppi) og koma þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson á fundinn og ræða stjórnmálin, einkavæðingu bankana og efnahagsmál dagsins.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica