Morgunverðarfundur í Árborg
Á laugardaginn stóð Vg í Árborg fyrir morgunverðarfundi. Fundurinn var vel sóttur og stóð í rúma tvo klukkutíma. Sérstakur gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en hún flutti gott ávarp þar sem hún ræddi m.a. um lýðræðið og þann lýðræðishalla sem einkenndi nútímann með velþóknun ríkjandi stjórnvalda. Hún ræddi um niðurlægingu Alþings, þessu aldagamla flaggskipi lýðræðis og löggjafar í veröldinni, þegar það lét yfirgang framkvæmdavaldsins neyða sig til þess að samþykkja lög í andstöðu við stjórnarskrána. Í máli sínu lagði hún áherslu á að það væri ekki einasta efnahagskreppan sem þyrfti að glíma við heldur samtímis að takast á við endurreisn lýðræðisins. Í raun stjórnar framkvæmdavaldið í dag með tilskipunum og notar Alþingi Íslendinga til að afgreiða tilskipanirnar til að reyna að blekkja framgangsmátann. Guðfríður Lilja kom víðar við og var gerður mjög góður rómur að máli hennar.
Atli Gíslason, alþingismaður tók einnig til máls og ræddi um viðfangsefni dagsins og hvernig þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hefði gripið til myndu bíta þjóðina þegar lengra liði. Hann fór vítt um sviðið og þótti fólki gott að fá upplýsingar um hvernig málin stæðu í raun og veru. Bæjarfulltrúi Vg í Árborg ræddi um málefni sveitarfélagsins og einnig um hugsjónaleysi samtímans hvernig þeir sem ánetjuðust aðferðum frjálshyggjukapítalismans glötuðu hugsjóninni og væðu fram með gróðafíknina eina að markmiði og nýttu sér hverja "leyfilega" smugu til að koma fram markmiðum sínum í auknum gróða. Og svo þegar skýjaborgin hryndi þá bæru þeir enga ábyrgð en hefðu bundið þjóðina þungum klafa. Hann sagði að sá sem gleymdi hugsjóninni fyrir frelsi, lýðræði og samfélagi fyrir alla, hefði glatað hluta af sálu sinni. Hann sagði að baráttan fyrir réttlátu samfélagi þroskaðist einungis í vitund þess manns, sem tengdi saman fortíð, nútíð og framtíð og samfélag þar sem mennskan sæti í öndvegi.

