Fréttir
Vantraust á ríkisstjórnina tekið fyrir
Á morgun, mánudaginn 24. nóvember fer fram umræða um tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar að frumkvæði Vinstri grænna. Umræðan hefst klukkan hálf tvö og lýkur um hálf sjö með atkvæðagreiðslu. Félagar í Vinstri grænum eru hvattir til að fylgjast vel með umræðunum ýmist af þingpöllunum eða í beinni útsendingu sjónvarps og útvarps. Þá má minna á að alla virka daga nema föstudaga er opið hús að Suðurgötu 3 milli klukkan fjögur og sex.


