Fréttir

Smugan í loftið

20.11.2008

Vefritið Smugan var opnað 19. nóvember en hún er vettvangur opinna skoðanaskipta og frétta í anda félagshyggju, kvenfrelsis, umhverfisverndar og friðarstefnu óháð markaðsöflunum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð tók frumkvæði að stofnun vefritsins en það er rekið sjálfstætt undir stjórn Bjargar Evu Erlendsdóttur og af fyrirtækinu Útgáfufélagið Smugan ehf. Eigendur félagsins eru auk Vinstri grænna fjöldi einstaklinga. Tilgangur Smugunnar er að leggja sitt að mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica