Frumvarp VG lagt fram á Alþingi: Verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en 2%
Ögmundur Jónasson og aðrir þingmenn VG hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum þess efnis að verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en nemur 2%. Með framlagningu frumvarpsins er ríkisstjórnin hvött til að taka stærri og róttækari skref til að létta greiðslubyrði fólks heldur en gert er í þeim tillögum til greiðslujöfnunar sem lagðar voru fram á Alþingi í gær. Við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í samfélaginu, óðaverðbólga og háir vextir, er það brýnt réttlætismál og raunverulegar kjarabætur fyrir lántakendur ef frumvarp VG nær fram að ganga.
Í greinargerð frumvarpsins segir að nauðsynlegt sé að taka verðtryggingu lána í heild sinni til endurskoðunar. Þar til slíkt verður gert er afar mikilvægt að ná nú þegar fram þeirri lagabreytingu sem frumvarpið leggur til sem lágmarksvernd fyrir lántakendur verðtryggðra lána. Með þessu móti er lánskostnaður raunverulega lækkaður í stað þess að einungis sé lengt í snörunni eins og gert er með frestun afborgana eins og tillögur ríkisstjórnarinnar bera með sér.
Frumvarpið í heild sinni má nálgast hér:
http://www.althingi.is/altext/136/s/0186.html
Frekari upplýsingar veita Ögmundur Jónasson s. 894 6503, Jón Bjarnason s. 862 6170 eða Katrín Jakobsdóttir s. 895 6052.

