Niðurstöður málefnadeiglu
Málefnadeigla Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006
Jafnrétti ? umhverfi ? lýðræði
xV? náttúrulega
Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta stoðir lýðræðis í samfélaginu. Hreyfingin er samstarfsvettvangur þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð og tryggja sjálfbæra þróun samfélagsins, þar sem umhverfis-, félagslegir og hagrænir þættir eru samofnir.
Öflugt, samábyrgt velferðarkerfi er lykillinn að farsælu samfélagi sem getur þróast í sátt og býr yfir innri styrk og samheldni. Stöðugleiki og farsæld slíks samfélags eru dýrmæt auðlind - verðmæti í sjálfu sér. Slíkt samfélag færir íbúum sínum lífsgæði sem margir yrðu af ella.
Vinstri græn bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í vor og vilja setja fram skýra valkosti og innleiða nýja hugsun í mótun borgarsamfélagsins. Meginþættir stefnu VG, jöfnuður, jafnrétti, kvenfrelsi, umhverfi og lýðræði eiga mikið erindi í borgarstjórnarmálin ekki síður en landsmálin.
Vinstri græn vilja að Reykjavík verði borg fyrir alla:
Ø Skapa þarf öllum börnum góð skilyrði til að þroskast og dafna á eigin forsendum. Málefni barna á að samþætta öllum öðrum málaflokkum.
Ø VG hefur fyrstur flokka gert gjaldfrjálsan leikskóla að baráttumáli sínu. Þegar hafa fyrstu skrefin í þá átt verið stigin í Reykjavík. VG stefnir að því að leikskólinn verði að fullu gjaldfrjáls á næsta kjörtímabili.
Ø VG vill renna enn styrkari stoðum undir grunnskólann með faglegan metnað að leiðarljósi. Allir nemendur eiga að njóta alhliða menntunar við hæfi hvers og eins og fá hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga. Allri gjaldtöku á að útrýma úr grunnskólunum. Tryggja þarf rétt fatlaðra barna til menntunar og þroska.
Ø VG vill þróa áfram starfsemi frístundaheimila í borginni og tryggja að öll börn í 1. ? 4. bekk hafi aðgang að þeim án gjaldtöku.
Ø Mikilvægt er að jafna aðstöðu barna til hvers kyns tómstundastarfs hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlist, dans eða hvað annað. VG vill að borgin jafni aðstöðu barna í þessu tilliti með beinum stuðningi.
Ø Endurskoða þarf þau úrræði sem eru til fyrir börn frá því fæðingarorlofi sleppir þar til leikskólinn tekur við.
Ø Borgin ræki skyldur sínar gagnvart fólki í húsnæðiserfiðleikum og tryggi að allir einstaklingar og fjölskyldur eigi kost á öruggu húsnæði.
Ø VG vill að samfélagið nýti krafta, þekkingu og reynslu borgara á öllum aldursskeiðum, en ekki síst aldraðra. Stuðla þarf að því að sem flestir geti búið sem lengst heima hjá sér og bæta þarf þjónustuna til að koma til móts við ólíkar þarfir einstaklinganna. Gera þarf áætlun um endurbætur heimaþjónustu og samþættingu við heimahjúkrun. Fjölga þarf hjúkrunarrýmum í borginni enda enn margir í brýnni þörf fyrir þá þjónustu.
Ø Komið verði á fót Reykjavíkurráði aldraðra í hverfum borgarinnar, líkt og ungmenni hafa starfrækt um nokkurt skeið.
Ø VG vill stuðla að sjálfbærri þróun borgarsamfélagsins. Í skipulagi borgarinnar leggur VG áherslu á skynsamlega nýtingu borgarlandsins þar sem þétting byggðar og blönduð landnotkun eru lykilatriði, þó þannig að í öllum skipulagsákvörðunum sé tekið tillit til umhverfisins, náttúru, menningar og sögu.
Ø VG vill sjálfbæra samgöngustefnu sem miðar að því að stórauka hlutdeild almenningssamgangna, svo og gangandi og hjólandi umferðar. Draga á úr umfangi umferðarmannvirkja, mengun af völdum samgangna og auka umferðaröryggi.
Ø VG telur brýnt að auka sorpflokkun á heimilum og í fyrirtækjum. Auðvelda þarf aðgengi að endurvinnslustöðvum og færa hluta þjónustunnar nær heimilunum. Endurskoða á fyrirkomulag sorphirðugjalds og fasteignaskatta þannig að það verði fjárhagslegur ávinningur íbúa að draga úr sorpmagni.
Ø VG vill að hlúð verði að náttúru- og útivistarperlum borgarinnar, s.s. eyjunum á Sundunum, Reykjanesfólkvangi, Heiðmörk, Elliðaárdal og strandsvæðum við Skerjafjörð, Fossvog og Grafarvog. Bæta þarf aðgengi og aðstöðu almennings á þessum stöðum.
Ø Sjálfbær orkustefna er einn af hornsteinunum í vinstri grænni pólitík. Við ákvörðun um nýtingu orkuauðlinda ber að hafa hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi, sem tryggir að umhverfisáhrif framkvæmda séu lágmörkuð og jafnan afturkræf. VG berst fyrir samfélagslegu eignarhaldi orkufyrirtækja og telur frumskyldu að tryggja framleiðslu og afhendingaröryggi raforku til almennings á hagstæðu verði.
Ø VG vill hverfa frá stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar en leggja þess í stað áherslu á sjálfbæra atvinnustefnu, sem grundvallast á uppbyggingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja, nýsköpun og þróun, gagnaveitu og þróun vistvænna orkugjafa í samgöngum.
Ø Vegferðin til sjálfbærrar þróunar samfélagsins krefst þess að yfirvöld, ekki síður en borgararnir, endurskoði neysluvenjur sínar í stóru sem smáu. Hvetja þarf til endurnýtingar, sparnaðar og verndunar á sem flestum sviðum. Nefna má orkusparnað og verndun gamalla húsa í því sambandi. Öll fyrirtæki og stofnanir borgarinnar setji sér umhverfismarkmið og komi á umhverfisstjórnunarkerfi.
Ø Vinstri græn vilja stórauka íbúalýðræðið í borginni. Nýir tímar kalla á nýjar aðferðir í þeim efnum. Fjölga þarf möguleikum borgarbúa til að hafa bein áhrif á nánasta umhverfi sitt, m.a. með könnunum og kosningum um einstök mál. Borgarstjórnin þarf í ríkari mæli en nú er að endurspegla hina fjölbreyttu flóru viðhorfa í fjölmenningarlegu borgarsamfélagi 21. aldar.
Ø Endurskoða á hlutverk og stöðu hverfisráða með það að markmiði að auka vægi þeirra. Styrkja á starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og flytja til þeirra fleiri verkefni. Borgin á að viðurkenna mikilvægi frjálsra félagasamtaka og virkja þau í allri stefnumörkun.
Ø VG vill samfélag þar sem bæði konur og karlar fá notið sín og hafnar því að fólki sé mismunað eftir kyni. Kynbundnu launamisrétti og tekjuskerðingu verður að útrýma. Styrkja þarf stöðu jafnréttis- og kvenfrelsismála í stjórnkerfi borgarinnar og samþætta öðrum málaflokkum. Borgin á að gera átak í að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og klámvæðingu.
Ø Borgaryfirvöld kappkosti að starfsfólki borgarinnar séu greidd góð laun og því búin ákjósanleg starfskjör í hvívetna sem auki möguleika þess til starfsþróunar. VG vill afnema launaleynd.
Ø Borgin á að vera aðgengileg öllum. Gera þarf átak til að bæta aðgengi fatlaðra að stofnunum og starfsemi borgarinnar og heimilum sínum.
Ø VG telur mikilvægt að bæta aðstæður útlendinga sem velja sér búsetu á Íslandi. Tryggja þarf rétt þeirra til móðurmálskennslu og jafnframt rétt og möguleika til íslenskunáms án endurgjalds. Tryggja þarf að útlendingar, eins og aðrir, fái notið menntunar sinnar, þekkingar og reynslu.
Vinstrihreyfingin grænt framboð er skýr valkostur í borgarstjórnarkosningunum í vor. Gengi Vinstri grænna getur ráðið úrslitum um það, hvort sjónarmið jöfnuðar, jafnréttis, kvenfrelsis, umhverfis og lýðræðis verði við stjórnvölinn í borginni á næsta kjörtímabili. Allir borgarbúar sem bera þessi mál fyrir brjósti eiga samleið með okkur vinstri grænum.
xVí vor

