Fréttir

Ályktun Vg á Akureyri um loftrýmiseftirlit Breta

13.11.2008

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri átelur harðlega að ríkisstjórn Íslands skuli ekki skilyrðislaust hafna fyrirhuguðu loftrýmiseftirliti Bretlands yfir Íslandi. Slíkt loftrýmiseftirlit er ekki nauðsynlegt í ljósi þess að engar hernaðarhættur ógna Íslandi sem og er það algerlega óverjandi að í núverandi stöðu borgi íslenskir skattgreiðendur Bretum fyrir flug herflugvéla yfir Íslandi. Ríkisstjórn Bretlands hefur nú þegar stórskaðað íslenska hagsmuni með því að beita hryðjuverkalöggjöf gagnvart Íslendingum og krefjast svo að íslenskur almenningur taki á sér skuldarbyrðar langt umfram þær ábyrgðir sem kveðið er á um í evrópskri löggjöf. Það er svo ástæða til að árétta vegna orða utanríkisráðherra þess efnis að hann hafi ákveðið að „leggja málið í hendur“ Bretum að það er ráðherrans að ákveða hvort hér sé loftrýmiseftirlit eða ekki.

Frekar upplýsingar veitir Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður Vg á Akureyri í síma 8213434.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica