Fréttir

Meginstefna þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs varðandi málefni nýju ríkisbankanna

13.11.2008

Nú þegar þrír nýir bankar í eigu ríkisins hefja störf og þeim verða skipuð varanleg bankaráð með fulltrúum m.a. tilnefndum af þingflokki Vinstri grænna leggur þingflokkurinn sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Að um opinberar bankastofnanir er að ræða sem haldið verði í alfarið í eigu ríkisins þar til annað verður þá ákveðið. Þingflokkur VG áskilur sér rétt til þess að leggjast gegn öllum ótímabærum og vanhugsuðum hugmyndum um að opna eignarhaldið fyrir einkaaðilum að svo stöddu, í ljósi reynslunnar af hrakfallasögu einkavæðingar bankanna.
  • Mikilvægt er að bankarnir verði frá byrjun reknir á faglegan og lýðræðislegan hátt, að upplýsingalög og stjórnsýslulög gildi um starfsemi þeirra eins og við verður komið, starfsemin sé gagnsæ og upplýsingar veittar á öllum stigum mála. Er þá átt við að gengið sé lengra í þeim efnum og langt umfram það sem hlutafélagalög eða lög um opinber hlutafélög ein og sér skylda.
  • Mikilvægt er að hugað verði strax að lagaumhverfi nýju ríkisviðskiptabankanna og það kannað hvort ástæða sé til að setja um starfsemi þeirra sértæk lagaákvæði.
  • Taka þarf afstöðu til hvort um verði að ræða hreina viðskiptabankastarfsemi og ef ætlunin er að bankarnir hafi með höndum sérhæfðari þjónustu eða einhvers konar fjárfestingabankastarfsemi hefur það verið afstaða þingflokksins að aðskilja eigi og aðgreina með mjög skýrum hætti slíka starfsemi. Þingflokkur VG leggur mikla áherslu á að bankarnir líti á sig sem opinberar þjónustustofnanir, sem samfélagsfyrirtæki, með ríkar skyldur við alla sína viðskiptavini, bæði einstaklinga og fyrirtæki um land allt og tryggi að allir njóti sambærilegrar og góðrar þjónustu. Eitt allra mikilvægasta verkefni bankanna næstu mánuði hlýtur eðli málsins samkvæmt að verða að styðja heimili og fyrirtæki gegn um yfirstandandi erfiðleika og reyna að forða gjaldþrotum og atvinnuleysi.
  • Það er afstaða þingflokks VG að óumflýjanlegt sé að endurskipuleggja starfsemi bankanna frá grunni frá því millibilsástandi sem upphófst eftir að ríkið yfirtók bankana og setti þeim tímabundið bankaráð embættismanna. Er þá átt við að auglýst verði eftir nýjum bankastjórum og einnig verði millistjórnendur í efri lögum bankanna ráðnir með sama hætti. Hafa verður í huga í þeim efnum mikilvægi þess að hrein skil verði milli fortíðar og þess sem gerðist inni í bankakerfinu bæði fyrir hrun bankanna og meðan hið tímabundna millibilsástand varði. Þingflokkurinn leggur mikla áherslu á að horfið verði tafarlaust frá allri ofurlaunaarfleifð og gætt verði hófsemi og launajöfnunarsjónarmiða í sambandi við kjör og fríðindi allra yfirmanna. Tryggja verður fullkominn launajöfnuð milli kynja og kynbundinn launamunur má ekki líðast.
  • Þingflokkur VG leggur ríka áherslu á að gætt verði kynjasjónarmiða í sambandi við mönnun í stjórnendastöður bankanna þannig að hlutur kvenna á bankastjórastólum, í bankastjórn og meðal æðstu stjórnenda sé a.m.k. jafn á við karla.
  • Þingflokkur VG leggur áherslu á að farið verði með eignarhluti ríkisins í fyrirtækjum, sem bankarnir hafa nú á sínum snærum eða munu yfirtaka, með meginstefnu flokksins að leiðarljósi. Þannig verði engar ákvarðanir teknar um ráðstöfun eða sölu á starfsemi til einkaaðila sem betur kunni að verða komin í opinberri eigu til frambúðar. Gildir þetta að sjálfsögðu sérstaklega ef um er að ræða eignarhluti í orkufyrirtækjum eða almannaþjónustufyrirtækjum, eignarhluti sem tengjast innviðum samfélagsins eða mikilvægri almannaþjónustu svo sem á sviði fjarskipta, flutninga, orku- eða auðlindanýtingar.
  • Mikilvægt er að bankarnir komi fram sem faglegar og hlutlausar stofnanir og blandi sér ekki í pólitísk deilumál eins og framtíðarskipan mála hvað varðar tengsl Íslands við Evrópusambandið eða annað í þeim dúr. Verður þetta einnig að gilda um sjálfstæðar einingar innan bankanna.


Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica