Mikilvægt skref til verndunar
Eftir margra ára baráttu fyrir stækkun og verndun friðlandsins í Þjórsárverum virðist nú betur horfa en nokkru sinni í þeim efnum. Stjórn Landsvirkjunar hefur dregið í land með undirbúning veituframkvæmda og mikill þrýstingur er innan þings sem utan á að gengið verði frá stækkun og verndun friðlandsins. Þegar fréttir bárust af samþykkt stjórnar Landsvirkjunar sá þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs ástæðu til að bregðast við og sendi í morgun frá sér eftirfarandi ályktun:
Mikilvægt skref til endanlegs sigurs
Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að leggja undirbúning Norðlingaölduveitu til hliðar um sinn og er það mikilvægt skref til endanlegs sigurs í baráttunni fyrir verndun Þjórsárvera. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs fagnar því en hlýtur þó að benda á að mun hreinlegra hefði verið að stjórnin hefði tekið af öll tvímæli og samþykkt að hætta algjörlega við áform um veituna. Með því móti hefði stjórnin getað greitt fyrir því að Þjórsárverafriðland yrði stækkað og það tilnefnt á Heimsminjaskrá UNESCO, eins og þingsályktunartillaga meirihluta umhverfisnefndar Alþingis undir forystu Kolbrúnar Halldórsdóttur gerir ráð fyrir. Sú tillaga á sér sterkan samhljóm meðal almennings, sem upp á síðkastið hefur sent frá sér skýr skilaboð þar að lútandi.

