Fréttir

Góður fundur í Vestmannaeyjum

12.11.2008

IMG_4380
IMG_4380

Mánudaginn 10. nóv. boðaði Vinstrihreyfingin – grænt framboð til opins fundar á kaffi Kró Vestmannaeyjum. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni  Fortíð –Nútíð – Framtíð og var fjölsóttur. Frummælendur voru Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, Atli Gíslason þingmaður í Suðurkjördæmi og Aldís Gunnarsdóttir varabæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) varaþingmaður tók og lagið fyrir fundarmenn.

Eins og yfirskriftin ber með sér var fyrst og fremst rætt um  þær aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi og hvað framundan er. Að loknum ávörpum frummælenda spunnust miklar, alvarlegar en um leið fjörugar og gagnlegar umræður og var greinilegt að margt brennur á fólki þessa dagana. Sérstaklega kom fram á fundinum óánægja með hvernig stjórnvöld á Íslandi halda upplýsingum um ástandið frá almenningi og auki þannig þá óvissu sem óhjákvæmilega ríkir meðal Íslendinga um þessar mundir.  Því var fagnað að Vinstrihreyfingin - grænt framboð væri fyrst stjórnmálaflokka til að boða til opinna funda um ástandið í landinu og sinnti þannig vel skyldum sínum við almenning.

Sem fyrr segir var fundurinn vel sóttur og greinilegt að ábyrgur málflutningur talsmanna hreyfingarinnar á sér samhljóm með æ stærri hóp. Þess má geta að margir nýir félagar skráðu sig í hreyfinguna og stuðla þannig því að því að gera hana að virkara afli í landsmálunum.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica