Umræða þýðir ekki sjálfkrafa kúvendingu
Katrín Jakobsdóttir er í forsvari fyrir Evrópuhóp Vinstri grænna sem hélt á dögunum Evrópusmiðju, hún segir: „Á Evrópusmiðjuna mættu margir sem höfðu áhuga á að koma sínum sjónarmiðum áfram og það er okkur sem flokki mjög hollt að skoða evrópumálin út frá ýmsum sjónarhornum rétt eins og öll önnur mál. Aðild að ESB er mjög stór spurning og eitthvað sem ekki er hlaupið í í flaustri í miðri efnahagslægð en hins vega hafa félagar okkar gjarnan viljað ræða evrópumálin og meta þau út frá núverandi aðstæðum. Stefna flokksins er hins vegar óbreytt þó fjölmiðlar hafi viljað leggja mikla merkingu í umræðuna. Eðli Evrópusambandsins er að vera alþjóðleg viðskiptablokk sem útilokar um leið þá sem standa utan við sambandið. Við höfum verið mjög gagnrýnin á slíkar blokkir og bent á að sambandið hefur miðast mjög við þarfir fjármagnsins. Það er kallað eftir umræðu um Evrópusambandið og að sjálfsögðu erum við til í þá umræðu og hyggjumst taka hana frá öllum sjónarmiðum."


