Fréttir

Stefnumót við Byggingamenn

7.11.2008

stefnumot_vid_byggingamenn
stefnumot_vid_byggingamenn

Fulltrúum Vinstri grænna var boðið að halda fund með Meistarasambandi byggingamanna í morgun. Góð mæting var á fundinum og margar hugmyndir komu upp til að bregðast við því alvarlega ástandi sem er í byggingariðnaðinum. Iðnaðurinn velti 256 milljörðum á síðasta ári og innan geirans starfa 16.000 manns.

Meðal þeirra hugmynda sem komu fram á fundinum er að rýmka reglur um sjálfstæða atvinnurekendur þegar þeir verða atvinnulausir og innkomu þeirra inn í starfið aftur, sömuleiðis að iðnnemar fái rétt til atvinnuleysisbóta ef þeir missa vinnuna. Á fundinum voru bæði þingmenn frá Vinstri grænum og borgarfulltrúar og var sérstaklega fjallað um ábyrgð sveitastjórna og möguleika þeirra til að fara af fullu afli í viðhaldsverkefni og aðrar mannaflsfrekar endurbætur. Þá er mikið verk enn óunnið til að gera opinberar byggingar aðgengilegar fyrir alla. Hörð gagnrýni kom fram á ríkisstjórnina og stjórn seðlabankans fyrir að hækka stýrivexti og þrengja þannig að atvinnurekstri.

Mikil ánægja var með fundinn á báða bóga og borgarfulltrúar og þingmenn fengu mikið af góðum ráðum í veganesti í hinum erfiðu verkefnum framundan.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica