Fréttir
Forval á Akureyri
Níu einstaklingar gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri. Forvalið mun fara fram laugardaginn 28. janúar 2006 milli klukkan 10 ? 18, í húsnæði VG á Akureyri, Hafnarstræti 98.
Þau níu sem gefa kost á sér eru:
1. sæti: Baldvin H. Sigurðsson
1. sæti: Valgerður H. Bjarnadóttir
1.-3. sæti: Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
2. sæti: Wolfgang Frosti Sahr
2.-3. sæti: Jón Erlendsson
3.-4. sæti: Baldvin Esra Einarsson
4.-6. sæti: Kristín Sigfúsdóttir
5.-6. sæti: Jóhannes Árnason
6. sæti: Lilja Guðmundsdóttir
2. sæti: Wolfgang Frosti Sahr
2.-3. sæti: Jón Erlendsson
3.-4. sæti: Baldvin Esra Einarsson
4.-6. sæti: Kristín Sigfúsdóttir
5.-6. sæti: Jóhannes Árnason
6. sæti: Lilja Guðmundsdóttir
Kosningarétt í forvalinu hafi allir skráðir félagsmenn í VG, 16 ára og eldri með lögheimili í Akureyrarkaupstað. Hægt er að skrá sig í félagið fram til lokunar kjörstaðar.
Til að tryggja jafna stöðu kynjanna á listanum munu fulltrúar af gagnstæðu kyni skipa tvö efstu sætin sem og hver tvö sæti þar á eftir. Í forvalinu verða valdir 6 efstu frambjóðendur á lista flokksins fyrir næstu sveitastjórnarkosningar.
Fimm manna kjörstjórn mun annast framkvæmd forvalsins. Formaður hennar er Hallur Gunnarsson (8620416) en aðrir nefndarmenn eru, Ólafur Þ. Jónsson, Guðný Anna Ríkarðsdóttir, Hlynur Hallsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir.

