Fjölmenni á fundi á Selfossi
Mikið fjölmenni var á opnum stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Árborg á Hótel Selfossi fimmtudagskvöldið 30.0któber, með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Árborg.
Jón hóf fundinn á að fara yfir stöðu mála í Sveitarfélaginu Árborg og sagði þar frá áherslum í komandi fjárhagsáætlun en í henni á að leggja áherslu á að hækka ekki á stoð- og grunnþjónustu,halda á fast við þá áætlun að koma á strætisvagni til Reykjavíkur um áramót auk þess sem áframhald mun vera á fríum strætó innanbæjar í sveitarfélaginu. Hann ítrekaði að það væri nauðsyn fyrir sveitarfélagið að komast í fjármagn til þess að geta haldið úti framkvæmdum sérstaklega í ljósi þess að margt verkfært fólk er að missa vinnuna í Árborg.
Steingrímur fór vítt og breitt fyrir stjórnmálasviðið og rakti aðdragandann að því ástandi sem við erum nú komin í og minntist að það að hann og fleiri höfðu varað sterklega við þessu að þetta myndi gerast. Einnig fór Steingrímur vel yfir það hvernig málin hafa þróast nú á síðustu dögum og lísti meðal annars fyrir fundarmönnum þeim tillögum sem hann fór með á fund Geirs Haarde forsætisráðherra sem því miður hafnaði þeim tillögum. Steingrímur hvatti þó fundargesti til að líta bjartsýnum en raunsæjum augum á framtíðina og benti á ýmsar leiðir því til stuðnings.
Mikil og góð stemming var á fundinum og urðu fyrirspurnirnar margar og umræður á stundum snarpar og fjörugar. Heiða tók lagið í upphafi og í hléi. Sædís Ósk Harðardóttir formaður VG Árborg sem stýrði fundinum, sleit honum með þeim orðum að nú væri nauðsyn að stilla saman strengi því kosningar gætu verið nær nú virtist vera og því væri nauðsyn á því að VG félagar væru tilbúnir þegar að kallið kæmi að mynda ríkisstjórn þar sem jafnrétti, kvenfrelsi, umhverfismál og hagsmunir hinna lægst launuðu yrðu settir á oddinn.


