Fréttir
Félagsfundur í Kópavogi
Boðað er til félagsfundar VG í Kópavogi mánudaginn 30. janúar næstkomandi. Fundurinn byrjar klukkan 20:00 og verður haldinn í sal Kvenfélags Kópavogs, Hamraborg 10 (fyrir ofan Kaffi Borg). Fundarstjóri er Stefán Pálsson.
Dagskrá er eftirfarandi:
- Tillaga kjörnefndar að lista VG í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor
- Umræður um komandi áherslu- og málefnavinnu
- Almennar umræður
Mikilvægt er að flestir sjái sér fært að mæta svo að fundurinn verði sem öflugastur. Kosningar eru í nánd!
Stjórn VG í Kópavogi

