Fréttir

Opinn fund í efnahags- og skattanefnd strax

24.10.2008

althingi
althingi

Ögmundur Jónasson hefur fyrir hönd þingflokks Vinstri grænna óskað eftir opnum fundi í efnahags- og skattanefnd Alþingis í kvöld eða á morgun til að fjalla um þá skilmála Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:

Bréfið er svohljóðandi:

Pétur H. Blöndal,

formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis.

Í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita formlega til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og með hliðsón af því að hann hefur skýrt ríkisstjórninni frá sínum skilmálum er hér með óskað eftir að efnahags- og skattnefnd Alþingis komi saman til fundar í kvöld eða á morgun þar sem upplýst verði um umrædda skilmála, þeir skýrðir og um þá fjallað. Fundurinn verði opinn fjölmiðlum og almenningi. Fráleitt er að leita til IMF án þess að Alþingi fjalli áður um samningsforsendur Íslendinga.

Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica