Fréttir

Svæðisfélag Vinstri grænna í Húnaþingi

9.2.2007

Enn eitt VG félagið í kjördæminu var stofnað á Blönduósi í gærkvöldi. Starfssvæði hins nýja félags, Svæðisfélags Vinstri grænna í Húnaþingi nær yfir báðar Húnavatnssýslur en fyrir er á Norðurlandi vestra Svæðisfélag Vinstri grænna í Skagafirði sem nær yfir Sveitarfélagið Skagafjörð og Akrahrepp. Það verða því starfandi tvö svæðisfélög VG á Norðurlandi vestra í stað eins áður sem hafði einnig innan sinna vébanda félagsdeild í Sveitarfélaginu Skagafirði. Þessi nýju svæðisfélög munu hafa með sér náið samstarf. Vel var mætt á stofnfundinn á Blönduósi og margir nýir félagar bættust í hópinn. Ákveðið var að fleirum yrði á næstunni gefinn kostur á að gerast stofnfélagar VG í Húnaþingi. Í stjórn hins nýja svæðisfélags voru kjörin Erla Ísafold Sigurðardóttir, Ásmundur Einarsson, Stefán Ólafsson, Sigrún B. Valdimarsdóttir og Sigvaldi Sigurjónsson. Í varastjórn voru kjörin Guðný Sigurðardóttir, Sigríður Alda Björnsdóttir og Magnús Jósefsson.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica