Fréttir

Ályktanir aðalfundar VG í Skagafirði

2.2.2006

Ályktun gegn frekari stórvirkjunum og álbræðslum

Aðalfundur VG í Sveitarfélaginu Skagafirði haldinn 29 janúar 2006, fagnar þeirri fjölbreyttu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Skagafirði síðustu árin og áformum um miðstöð hátækniiðnaðar í héraðinu. Hins vegar hafnar fundurinn hugmyndum um álver við Kolkuós og stórvirkjanir í Skagafirði í tengslum við álbræðslu á Norðurlandi, sem eru andstæðar hagsmunum Skagfirðinga. Atvinnutækifærin felast í fjölbreytni og þekkingariðnaði en ekki einhæfum álbræðslum sem skaða möguleika annarra atvinnugreina ásamt því að ganga á náttúru landsins og aðra atvinnukosti til framtíðar. Ennfremur fagnar fundurinn ákvörðun um að þyrma Þjórsárverum og hvetur til þess að einnig verði komið í veg fyrir að  Héraðsvötnunum og Jökulsánum í Skagafirði sem svo mjög móta ásýnd og ímynd héraðsins verði fórnað. Aðalfundur VG í Skagafirði leggst alfarið gegn öllum hugmyndum um virkjanir í Jökulsánum í Skagafirði og því að gert sé ráð fyrir slíkum framkvæmdum á aðalskipulagi Skagafjarðar.

 

 

Ályktun vegna lokunar starfsstöðvar Símans á Sauðárkróki

Aðalfundur VG í Sveitarfélaginu Skagafirði haldinn 29 janúar 2006, skorar á Símann að endurskoða ákvörðun sína um lokun starfsstöðvar á Sauðárkróki, fækkun starfa og skerðingu á þjónustustigi í Skagafirði. Ennfremur hvetur fundurinn Sveitarstjórn Skagafjarðar til að taka upp viðræður við Símann um hvernig tryggja megi núverandi störf hjá Símanum í Skagafirði og efla þjónustu við almenning og fyrirtæki í héraðinu.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica