Vel heppnaður landsfundur Ungra vinstri grænna
Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina.
Fundinn sátu ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár.
Á fundinum var Steinunn Rögnvaldsdóttir kjörinn formaður nýrrar stjórnar í stað Auðar Lilju Erlingsdóttur sem gengt hefur því embætti undanfarin tvö starfsár en gaf ekki kost á sér áfram.
Fundurinn fór fram í skugga þeirrar óvissu og umbrota sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar og einkenndust umræður á fundinum mjög af þeirri staðreynd, sem og ályktanir fundarins. Meðal annars var ályktað um hrun heimskapítalismans og stöðuna í efnahagsmálum. Einnig samþykkti fundurinn að leggja fram sparnaðaráætlun sem felur í sér fyrir nokkurra tugmiljarða sparnað í óþörfum verkefnum ríkissjóðs. Áætlunin verður kynnt á næstu dögum.
Ályktanir fundarins:
Ályktun um efnahagsmál
Ung vinstri græn krefjast þess að mynduð verði þjóðstjórn með aðkomu allra stjórnmálaflokka á Íslandi í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem nú standa yfir. Ríkisstjórnin undir forystu Geirs Hilmars Haarde er rúin trausti þjóðarinnar og því er þörf á nýjum forystumönnum í stjórnmálunum sem gætu endurvakið traust þjóðarinnar. Stjórnarherrar eru ekki þess umkomnir við núverandi aðstæður að hafna útréttri sáttahönd Steingríms J. Sigfússonar.
Ung vinstri græn fordæma stjórnvöld fyrir það andvaraleysi sem einkennt hefur efnahagsstjórnun landsins. Þrátt fyrir ítrekanir aðvaranir Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hagfræðinga og Seðlabanka Íslands hafa stjórnvöld brugðist skyldum sínum og með aðgerðaleysi sínu orðið til þess að íslenskt efnahagslíf er nú í áður óþekktri niðursveiflu sem ekki sér fyrir endann á. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er í raun og veru aðgerð til þess fallin að meginþungi vandans lendir á heimilum í landinu í stað þess að lenda á þeim sem bera ábyrgð á ástandinu.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur undanfarin misseri ítrekað bent á að áframhaldandi glórulaus neysluhyggja, samfara gríðarlegum stóriðjufram-kvæmdum og síðast en ekki síst skattalækkunum sem helst gagnast tekjuhæstu hópum samfélagsins, myndu verða til þess að óðaverðbólga myndi skapast hérlendis.
Hrun heimskapítalismans
Ung vinstri græn harma að hrun hins óhefta og ómannúðlega heimskapítalisma skuli nú bitna á þeim sem síst skyldi, eins og útlit er fyrir. Ung vinstri græn minna hins vegar á að fjármálakreppur á við þá sem nú á sér stað eru órjúfanlegur þáttur í þeim kreddukapítalisma sem tekur hugmyndafræðilegar kreddur frjálshyggjunnar fram yfir staðreyndir og klassísk manngildi. Ung vinstri græn telja einsýnt að dagar þessa óhefta heimskapítalisma séu senn taldir. Líkt og við fall Berlínarmúrsins árið 1989, sem markaði upphafið að hruni sovétkommúnismans, er annað þjóðfélagsskipulag nú að hrynja til grunna. Ekki er seinna vænna að stjórnvöld, félagasamtök og almenningur hefji strax að vinda ofan af þessu þjóðfélagsskipulagi, sem leitt hefur til gríðarlegs ójöfnuðar og umhverfisslysa um allan heim.


