Fréttir

Hver er óvinur ljósmæðra?

4.9.2008

Jón Bjarnason
VG-NV-1-Jon_Bjarnason_065

Jón Bjarnason skrifar í Fréttablaðið 4. september 2008

Ljósmæður heyja nú hetjulega baráttu fyrir sanngjörnum kjarabótum og að menntun þeirra og ábyrgð sé metin að verðleikum. Ég styð baráttu ljósmæðra eindregið. Það gerir Vinstrihreyfingin – grænt framboð.

 Ljósmæðramenntun er ein sú elsta sérmenntun hér á landi og skipti sköpum í stórbættu heilbrigði þjóðarinnar seint á 19. öldinni.  Skipun ljósmæðra  dreift á héruð landsins átti mikinn þátt í að stórlega dró úr dauða ungbarna og mæðra af barnsförum.   Þær eru ljósberar hverrar fjölskyldu sem og  hjá þjóðinni allri  eins og  hið hlýja starfsheiti „ljósmóðir“ ber með sér .

Sú staða sem komin er upp í samningaviðræðum við ljósmæður er ólíðandi, bæði gagnvart ljósmæðrum en ekki síður fæðandi konum sem nú eru í óvissu um hvort þær fái nauðsynlega og sjálfsagða þjónustu í mæðraeftirliti og fæðingu. Ríkisstjórnin vanmetur því ekki eingöngu störf ljósmæðra, heldur eru þarfir og öryggi  kvenna, mæðra og ófæddra barna  einnig virtar að vettugi.

Hin nakta staðreynd er sú að komi ekki til stórfelldra kjarabóta fyrir þessa starfstétt mun skortur á menntuðum ljósmæðrum setja einn mikilvægasta þátt heilbrigðiskerfis okkar í uppnám. Það er ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks til háborinnar skammar að semja ekki nú þegar við ljósmæður um kjör sem þær eru sæmdar af og tryggir nauðsynlega endurnýjun í stéttinni.

Það er ótrúlegt en jafnframt sorglegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Ljósmæður sjá nú að orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur fyrst og fremst  konur mætir fálæti og hroka við kröfum sínum um  svipuð laun og „karlastéttir“  hafa .- Hver vill benda á  „karlastétt“  sem ætti að vera ljósmæðrum æðri.

Ef svo heldur fram sem horfir hefur Samfylkingin svikið sín stærstu kosningaloforð um að stórhækka laun kvennastétta. Ráðherrar Samfylkingarinnar bera sömu á byrgð á kjarastefnu þessarar ríkisstjórnar  og Sjálfstæðisráðherrarnir. 

Ég fullyrði að þorri íslensku þjóðarinnar stendur með ljósmæðrum í baráttu sinni. Stjórnvöld ganga þvert gegn loforðum sínum og umboði kjósenda með því að svíkja kvennastéttir landsins enn eina ferðina og því verður að linna. Þjóðin krefst þess að ríkisstjórnin öll skammist sín fyrir framkomuna við ljósmæður og  fallist þegar í stað á sanngjarnar kröfur þeirra um bætt kjör.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica