Fréttir

Stofnfundur VG í Hveragerði

14.2.2006

Stofnfundur svæðisfélags Vinstrihreyfingar ? græns framboðs í Hveragerði og Ölfusi var haldinn laugardaginn 11. febrúar í sal verkalýðsfélagsins Boðans að Austurmörk 2 í Hveragerði. Gestir fundarins voru þau Katrín Jakobsdóttir varaformaður VG, Ögmundur Jónasson þingflokksformaður VG og Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi VG í Reykjavík.

Fundurinn tókst vel í alla staði og óhætt er að segja að viðbrögð við stofunun svæðisfélags Vinstrihreyfingar ? græns framboðs í Hveragerði og Ölfus hafi verið góð meðal íbúa svæðisins. Það er greinilegt að félagið er komið til að láta að sér kveða í sveitarstjónarmálum bæði í Hveragerði og Ölfusi.

Formaður var kosinn Finnbogi Vikar Guðmundsson og með honum í stjórn voru kosin þau Úlfur Björnsson og Tinna Berg Rúnarsdóttir. Varamaður í stjórn er Örn Guðjónsson.

Vinstrihreyfingin ? grænt framboð hefur fullan hug á að bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum Hveragerði.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica