Heræfingar teknar fram yfir samning við ljósmæður
Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi í dag beindi Katrín Jakobsdóttir fyrirspurn til fjármálaráðherra um hvað liði framtíðarlausn á kjaradeilu ljósmæðra. Fátt var um svör hjá ráðherra annað en að mikilvægt væri að semja. Verkfall ljósmæðra blasir við á morgun ef ekkert verður að gert. Í ræðu sinni dró Katrín fram nokkrar staðreyndir um kjör ljósmæðra:
-
„Að undanskildum dýralæknum uppfyllir engin háskólastétt jafn miklar menntunarkröfur og ljósmæður til að geta starfað við fag sitt, 6 ára háskólanám. Samt eru ljósmæður í 7. neðsta sæti meðal 24 BHM-félaga í launasetningu.
-
Til að fá nám metið að verðleikum í samræmi við aðrar stéttir með sambærilega menntun hjá ríkinu þurfa meðalgrunnlaun ljósmæðra að hækka um 24-25%. Þetta er einungis leiðrétting á því misrétti sem ljósmæður hafa þurft að búa við í fjölda ára, leiðrétting á hróplegu misræmi sem aðrar fagstéttir hafa viðurkennt.
-
Kostnaður við slíka launaleiðréttingu mun kosta ríkið um 10 milljónir á mánuði. Sama ríkisvald hikar ekki við að eyða hundrað milljónum af fé íslenskra skattborgara í heræfinguna Norður-Víking sem nú stendur yfir.
-
Ólíkari iðju en heræfingar og að taka á móti nýju lífi í þennan heim get ég vart ímyndað mér. Og ólíkt heræfingum þá spara störf ljósmæðra gríðarmiklar fjárhæðir fyrir ríkisvaldið. Yfirseta ljósmæðra, heimaþjónusta og aðhlynning við fæðandi konur með styttingu sængurlegu sparar ríkissjóði miklar upphæðir, fyrir utan að tryggja mæðravernd á heimsmælikvarða.
-
Samkvæmt bjartsýnustu spám munu um 44% stéttarinnar fara á eftirlaun á næstu 10 árum. Hver og einn einasti vinnukraftur stéttarinnar er því sérlega dýrmætur og stefnir í fullkomið óefni ef svo heldur fram sem horfir.“
Í þessu samhengi má rifja upp að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna er skýrt kveðið á um að „endurmeta beri sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta“. Það skýtur því skökku við að eina stétt landsins sem einungis er skipuð konum þurfi að bregðast við með hörðum aðgerðum til að fá leiðréttingu launa sinna. Í lok umræðnanna sagði Katrín: „Ég minni á að heimspekingurinn Sókrates kallaði ljósmæður göfugustu starfsgrein í heimi og kallaði sjálfan sig ljósmóður þekkingar. Við dagleg störf eru ljósmæður með a.m.k. tvö mannslíf í höndunum. Ákvarðanataka ljósmóður getur bjargað eða hætt lífum skjólstæðinga hennar. Ef þessi störf eru ekki dýrmæt, hvaða störf eru það þá?“


