Konur eru vara - karlar eru aðal í nýjum meirihluta
Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur virðist ætla að halda uppteknum hætti Óskars Bergssonar, þar sem konur eru varaskeifur en karlar aðal. Kosning í borgarráð, sem fer með æðstu stjórn borgarinnar milli borgarstjórnarfunda fór þannig að Óskar Bergsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson eru aðalmenn en til vara eru Jórunn Frímannsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Sif Sigfúsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk og Guðlaugur Sverrisson fyrir Framsóknarflokk.
Kosningin er til marks um gamaldags viðhorf í jafnréttismálum og vanmat á mikilvægi þess að rödd beggja kynja heyrist í lýðræðissamfélagi. Meirihluti gamaldags karlamenningar er ekki líklegur til að vinna að framgangi jafnréttis kynjanna hjá borginni, þó brýna nauðsyn beri til.


