Fréttir

Frumvarp Kolbrúnar um austurrísku leiðina nýtur stuðnings

11.8.2008

Kolbrún Halldórsdóttir
VG-RS-1-Kolbrun_Halldorsdottir_018

Í síðustu viku dæmdi hæstiréttur framhald nálgunarbanns óþarft í máli þar sem fyrrum sambýlismaður beitti konu sína mjög grófu andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Dómur í málinu sjálfu er ekki fallinn en það þykir svo alvarlegt að gefin var út opinber ákæra og brotamaðurinn sætti gæsluvarðhaldi í tvær vikur. Dómurinn hefur enn á ný vakið umræðu um hvernig samfélagið geti verndað konur gegn ofbeldi og hvaða lagarammi þurfi að vera til staðar. Í þessu samhengi er litið til frumkvæðis Austurríkismanna en árið 2001 fólu þeir lögreglunni það vald að setja nálgunarbann tafarlaust á ofbeldismenn, Lögreglan fékk jafnframt heimild til að fjarlægja menn af heimilinu. Austurríkismenn stóðu vel að lagasetningunni og henni fylgdu ýmis félagsleg úrræði svo sem stuðningur við fórnarlambið og ráðgjöf til handa ofbeldismanni og fórnarlambi.

Austurríska leiðin svokallaða er talin hafa reynst mjög vel og hafa öll hin Norðurlöndin tekið hana upp og mörg önnur Evrópulönd. Frá árinu 2003 hefur Kolbrún Halldórsdóttir ítrekað lagt til að hér verði farin sama leið til að vernda fórnarlömb kynbundins ofbeldis.

Fyrir allsherjarnefnd liggur nú frumvarp Björns Bjarnasonar um nálgunarbann, en frumvarpið er tæknilegs eðlis og felur ekki í sér neinar breytingar fyrir þolendur ofbeldis. Frumvarpið er hluti af endurskipulagningu opinberra mála í lagaumhverfinu. Við þetta frumvarp hefur Kolbrún Halldórsdóttir lagt fram breytingatillögu – að farin verði Austurríska leiðin. Í umræðu síðustu daga hefur fjöldi stjórnmálamanna lýst yfir stuðningi við aukin úrræði lögreglunnar til að beita nálgunarbanni og fulltrúar innan löggæslunnar hafa kallað eftir slíkum úrræðum. Svo virðist því sem mikill stuðningur sé við frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur og ber því að fagna. Vonandi er það til merkis um það að austurríska leiðin verði lögleidd hér á landi í september þegar þing kemur saman. Í því felst aukið öryggi fyrir fórnarlömb kynbundins ofbeldis.



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica