Fréttir

Grábrók - nýtt félag

19.2.2006

Stofnfundur Grábrókar, félagsdeildar Vinstrihreyfingar ? græns framboðs í Viðskiptaháskólanum á Bifröst var haldinn fimmtudagskvöldið 16. febrúar á Kaffi Bifröst.

Gestir fundarins voru þeir Ögmundur Jónasson þingflokksformaður VG og Jón Bjarnason þingmaður VG í NV ? kjördæmi.

Fundurinn tókst vel í alla staði og var vel sóttur, en um 25 ? 30 manns voru mætt á stofnfundinnog óhætt er að segja að viðbrögð við stofunun Grábrókar, félagsdeildar Vinstrihreyfingar ? græns framboðs í Viðskiptaháskólanum á Bifröst hafi verið góð meðal nema og starfsmanna Viðskiptaháskólans á Bifröst sem og íbúa svæðisins. Það er greinilegt að félagið er komið til að láta að sér kveða í stjórnmálaumræðunni í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.

Markmið Grábrókar, félagsdeildar VG í Viðskiptaháskólanum á Bifröst er að vera vettvangur umræðna um samfélagsmál af ýmsum toga með áherslu á félagshyggju, viðskipti, efnahags-, atvinnu- og umhverfismál.

Nýjung í stjórnmálastarfi á Bifröst er sú  að allir nemar, kennarar og starfsmenn við Viðskiptaháskólann á Bifröst, svo og aðrir sem búsettir eru á staðnum, geta gerst félagar í Grábrók, félagsdeild VG á Bifröst. Félagar í Grábrók þurfa ekki að vera flokksbundnir í Vinstrihreyfingunni ? grænu framboði, en aðeins þeir sem það eru hafa rétt til stjórnarsetu og atkvæðisrétt á fundum.

Formaður var kosinn Einar Árni Friðgeirsson og með honum í stjórn voru kosin þau Árni Hjartarson, Jónína Sólborg Þórisdóttir, Stefán Steingrímur Bergsson og Þorsteinn Newton. Varamaður í stjórn er Davíð Örvar Hansson. Vefstjóri heimasíður Grábrókar, www.vg.is/bifrost, var kosinn Finnbogi Vikar Guðmundsson.

Með kærri  kveðju og fyrir hönd stjórnar Grábrókar, félagsdeildar Vinstrihreyfingar ? græns framboðs í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.

Einar Árni Friðgeirsson formaður Grábrókar, félagsdeildar VG í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica