Fjölmennum á náttúruverndartónleika
VG hvetur alla til að fjölmenna á Náttúru - tónleika Bjarkar og Sigur Rósar ásamt Ólöfu Arnalds til stuðnings náttúruvernd á Íslandi. Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 28. júní í brekkunni fyrir ofan þvottalaugarnar í Laugardal í Reykjavík. Byrjað verður að hleypa einn á svæðið klukkan 17. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og gefa þeir aðilar sem að tónleikunum standa alla sína vinnu. Til þess að allt heppnist sem best óska tónleikahaldarar eftir sjálfboðaliðum til starfa á tónleikunum og eru áhugasamir beðnir að hafa samband við Margréti Vilhjálmsdóttur í síma 848 3891 eða Diljá í netfangi: diljaamunda@gmail.com Eins er óskað eftir góðum og nytsömum tillögum í tengslum við uppákomuna. Fjölskyldugarðurinn og Sundlaugin í Laugardal verða opin fyrir tónleikagesti til 24.00 þetta kvöld. Tónleikahaldarar treysta því að umhverfisvænir tónleikagestir sýni vistvernd í verki og gangi vel um svæðið. Annars sér Reykjavíkurborg um tiltekt á svæðinu eftir tónleikana og Gámafélagið ehf. um endurvinnslu á því rusli sem til fellur endurgjaldslaust. Aðstandendur tónleikanna bjóða öllum Náttúruverndarsamtökum að kynna sína starfsemi á tónleikasvæðinu. Búið er að kolefnisjafna tónleikana og buðust bændur á Þjórsárverasvæðinu og Sól á Suðurlandi til að gróðursetja 1001 björk og hefur garðurinn fengið nafnið SigurRósarlundur. Nánari upplýsingar á: www.nattura.info


