Fréttir

Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni borgarfulltrúa - það er ekki markmið Velferðarsviðs Reykjavíkur að styðja við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir yfirlýsing

12.6.2008

torleifur_gunnlaugsson
torleifur_gunnlaugsson

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur nú lokið skoðun á afgreiðslu Velferðarráðs þar sem ákveðið var að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um búsetuúrræði fyrir tuttugu einstaklinga sem eiga við fíkniefna- og áfengisvanda að stríða. Innri endurskoðun hóf skoðun sína eftir að undirritaður hafði samband við Innri endurskoðanda og bar undir hann rök sviðsstjóra Velferðarráðs fyrir því, “að samið verði við Heilsuverndarstöðina / Alhjúkrun þrátt fyrir að þeir séu ekki með lægsta tilboð” eins og segir í greinargerð sviðsstjóra Velferðarsviðs um málið.

Innri endurskoðun rannsakar ekki mál nema ástæða þyki til en hún taldi rök Velferðarsviðs ófullnægjandi og fór fram á frekari rökstuðning. Nú, tæpum þremur vikum síðar birtist rökstuðningur Velferðarsviðs á fundi Velferðarráðs í gær. Í stuttu máli er ekki hrakið að tilboð SÁÁ hafi verið lægst en því haldið fram að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun sé betur í stakk búið til að sinna úrræðinu á faglegan hátt og að “Velferðarsvið styðji við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu”

Ennfremur eru það talin veigamikil rök að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun hafi aðgang að ákveðnu húsnæði í austurbænum sem þykir hentugt. Mér hefur verið bent á að ekki sé til staðar kaupsamningur né löggiltur leigusamningur um húsnæðið og hugsanlega verði það ekki falt á næstunni og þarf þetta frekari skoðunar við.

Innri endurskoðun telur að nú liggi málefnalegar forsendur að baki þeirri ákvörðun að taka tilboði Heilsuverndarstöðvarinnar/Alhjúkrunar þar sem sú umsókn var talin hagkvæmust m.t.t. heildarlausnar. Innri endurskoðun leggur ekki sjálf mat á faglegt hæfi tilboðsgjafanna en segir rök “sérfræðinga Velferðarsviðs” málefnaleg.

Þeir sem koma til með að nýta sér umrætt úrræði eru að uppistöðu til þeir sem gistu í Byrginu á sínum tíma. Það fjármagn sem kemur frá Félags- og tryggingamálaráðuneyti í verkefnið var eyrnamerkt þessu. Það er sorglegt til þess að hugsa að ekkert nothæft úrræði hefur verið til fyrir þetta fólk í meira en eitt og hálft ár eftir þá smánarlegu meðferð sem það var látið þola í Byrginu en þar bera bæði ríki og borg ábyrgð.

Ef bera á saman SÁÁ og Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun með tilliti til uppbyggingar viðkomandi einstaklinga sem eiga að baki erfiða félagslega sögu og þurfa að takast á við afleiðingar áfengis- og/eða  vímuefnamisnotkunar er samanburðurinn án nokkurs vafa SÁÁ í vil.

Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun er nýtt fyrirtæki og mér vitandi ekki með reynslu á þessu sviði . SÁÁ hefur aftur á móti 30 ára reynslu af því að starfa að áfengis- og vímuefnalækningum þar á meðal rekstri búsetuúrræða fyrir alkahólista. Samkvæmt tilboði SÁÁ eru þar yfir 60 sérhæfðir heilbrigðisstarfsmenn sem eingöngu sinna því starfi að byggja upp einstaklinga sem eiga að baki erfiða félagslega sögu og þurfa að takast á við afleiðingar áfengis- og/eða vímuefnamisnotkunar. Má þar nefna sérfræðinga, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, áfengis- og vímuefnaráðgjafa og félagsráðgjafa.

Við þekkjum SÁÁ og það frábæra starf sem samtökin hafa stundað í áratugi. Fjölmargir Íslendingar eiga SÁÁ mikið að þakka og flestir eiga ættingja, vinnufélaga eða vini sem hafa notið þjónustu samtakanna.

Sú fullyrðing sviðsstjóra að það sé  eitt af markmiðum “Velferðarsviðs að styðja við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu” er með ólíkindum. Velferðarráð hefur aldrei markað sér þessa stefnu enda er einkavæðing félags- og heilbrigðiskerfisins eitt helsta deiluefni  samfélagsins. Þetta skýrir þó vilja meirihluta Velferðarráðs til að taka tilboði einkaaðila á markaði frekar en almannasamtaka þó þau síðarnefndu geti boðið betur einfaldlega vegna þess að þau þurfa ekki að færa eigendum sínum arð.

Virðingarfyllst, Þorleifur Gunnlaugsson



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica